Sighvatur Björgvinsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Það var ekki að ástæðulausu að ég taldi nauðsynlegt að fá fram frá hv. þm. þessa skoðun hans. Það vill nefnilega svo til að kosningar eru í maí á næsta vori og að loknum þeim kosningum má alveg eins gera ráð fyrir því að nýir menn setjist í ráðherrastólana og þá er ekki verra að hv. þm. sé búinn að lýsa þessari skoðun sinni ef það skyldi koma til að hann þyrfti að verja almannahagsmuni í þessu máli að dómum felldum.