Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Fimmtudaginn 17. desember 1998, kl. 11:18:34 (2454)

1998-12-17 11:18:34# 123. lþ. 44.1 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, SF (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 44. fundur, 123. lþ.

[11:18]

Siv Friðleifsdóttir:

Virðulegur forseti. Þetta mál hefur fengið gífurlega mikla umfjöllun bæði í þinginu og í heilbr.- og trn., góða og mikla umfjöllun. Það er ekki rétt að illa hafi verið staðið að málum. Það er alrangt og ég vísa því á bug. Hér er um framfaramál að ræða og því hefur ekki verið breytt í neinum grundvallaratriðum. Það hafa verið gerðar á því brtt. sem eru allar til bóta. Ég segi því nei.