Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Fimmtudaginn 17. desember 1998, kl. 11:49:52 (2476)

1998-12-17 11:49:52# 123. lþ. 44.1 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, SAÞ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 44. fundur, 123. lþ.

[11:49]

Sigríður A. Þórðardóttir:

Herra forseti. Hér er á ferðinni þarft og gott framfaramál sem hefur fengið vandaða og ítarlega umfjöllun á Alþingi. Samþykkt frv. mun styrkja heilbrigðiskerfið og stórefla rannsóknar- og vísindastarf í landinu. Ég segi já.