Vegabréf

Fimmtudaginn 17. desember 1998, kl. 12:02:57 (2480)

1998-12-17 12:02:57# 123. lþ. 44.10 fundur 231. mál: #A vegabréf# (heildarlög) frv. 136/1998, Frsm. SP
[prenta uppsett í dálka] 44. fundur, 123. lþ.

[12:02]

Frsm. allshn. (Sólveig Pétursdóttir):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir brtt. við gildistökuákvæði frv. til laga um vegabréf. Þar er lagt til að gildistaka laganna verði 1. júní 1999 í stað 1. apríl 1999, eins og gert er ráð fyrir í frv. Er lagt til að gildistökunni verði frestað til að færi gefist á að ljúka nauðsynlegum undirbúningi vegna gildistöku laganna, en sá undirbúningur snýr m.a. að útgáfu tölvulesanlegra vegabréfa.