Siglingalög

Fimmtudaginn 17. desember 1998, kl. 12:07:32 (2483)

1998-12-17 12:07:32# 123. lþ. 44.12 fundur 122. mál: #A siglingalög# (björgun) frv. 133/1998, Frsm. EKG
[prenta uppsett í dálka] 44. fundur, 123. lþ.

[12:07]

Frsm. samgn. (Einar K. Guðfinnsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 441 ásamt brtt. á þskj. 442 vegna frv. til laga um breytingu á siglingalögum, nr. 34 19. júní 1985, með síðari breytingum.

Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á VIII. kafla siglingalaga, nr. 34/1985, um björgun. Í megindráttum felur frumvarpið í sér að björgunarreglur siglingalaga eru aðlagaðar björgunarsamningi Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar, (IMO) frá 28. apríl 1989.

Töluverðar umræður urðu í nefndinni um hugtakið björgun eins og það er skilgreint í a-lið 1. gr. frumvarpsins. Hugtakið björgun er skilgreint mun rýmra en í gildandi siglingalögum og með lögfestingu þess munu björgunarreglur siglingalaga t.d. ná til aðstoðar sem veitt er á stöðuvötnum og við björgun úr höfnum. Nefndin telur ekki ráðlegt að þrengja hugtakið frá því sem gert er í frumvarpinu --- en það var eitt af því sem rætt var m.a. af ýmsum umsagnaraðilum --- einkum þar sem ekki verða séð fyrir þau atvik sem geta gerst í framtíðinni og er þá umhverfistjón sérstaklega haft í huga. Þá bendir nefndin á að við björgun lausafjár úr höfnum og á vatnasvæðum er eðlilegt að hafa hliðsjón af reglum um óbeðinn erindisrekstur þegar björgunarlaun eru ákveðin.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með nokkrum orðalagsbreytingum sem getið er á sérstöku þingskjali.

Hv. þingmenn Guðmundur Árni Stefánsson, Stefán Guðmundsson og Árni Johnsen voru fjarverandi við afgreiðslu málsins. En auk formanns og frsm., þess sem hér stendur, skrifa undir nál. hv. þingmenn Egill Jónsson, Ragnar Arnalds, Magnús Stefánsson, Ásta R. Jóhannesdóttir og Kristján Pálsson.