Fjárfestingarbanki atvinnulífsins

Fimmtudaginn 17. desember 1998, kl. 16:54:30 (2536)

1998-12-17 16:54:30# 123. lþ. 44.17 fundur 229. mál: #A Fjárfestingarbanki atvinnulífsins# (sala hlutafjár) frv. 167/1998, Forseti GÁS
[prenta uppsett í dálka] 44. fundur, 123. lþ.

[16:54]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Forseta er kunnugt um að þreifingar hafa verið í gangi um samkomulag um þinghaldið í dag og væntanlega næstu daga. Lyktir liggja ekki fyrir í þeim málum en verða vonandi og væntanlega fyrr en síðar. Forseti hafði áformað að nýta tímann þar til samkomulag næðist með því að halda áfram umræðu sem þegar var í gangi um 17. dagskrármálið.