Ísólfur Gylfi Pálmason:
Herra forseti. Til er máltæki sem segir ,,veldur hver á heldur``. Við getum alls ekki gefið okkur að einkarekin vistheimili séu eitthvað verri en ríkisrekin heimili. Á dögunum var ég einmitt í mínu ágæta kjördæmi og þar var verið að opna hjúkrunarheimilið Ás í Hveragerði. Það er einmitt einkarekið hjúkrunarheimili og byggir á mjög gömlum grunni --- elliheimilið Grund er 75 ára gömul stofnun. Þarna var einmitt verið að opna mjög myndarlega stofnun sem kostaði 200 millj. kr. Hún hefur verið reist af einkaaðilum en rekstur stofnunarinnar kostaði 70 millj. á ári. Á þremur árum var komin sama upphæð og bygging stofnunarinnar kostaði. Við erum hér með gríðarlegan vanda sem felst í löngum biðlistum á stofnanir fyrir aldraða. Hv. þm. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir kom einmitt inn á það.
Við megum alls ekki gefa okkur að stofnanir sem þessar bjóði upp á lakari þjónustu en gerist og gengur í ríkisreknu fyrirtæki. Út af hverju gefum við okkur þetta? Við vitum að t.d. á þessum stað er mjög mikill metnaður, mjög mikil reynsla og þarna hafa menn staðið sig gríðarlega vel. Fólkið sem þarna er er ánægt. Við megum ekki gefa okkur að þetta gangi ekki upp. Við eigum að gera þær kröfur til þeirra sem reka svona stofnanir að þjónustan sé fyrsta flokks. Það verðum við að tryggja og um það snýst málið.