Stjórn fiskveiða

Föstudaginn 18. desember 1998, kl. 17:47:22 (2626)

1998-12-18 17:47:22# 123. lþ. 45.3 fundur 343. mál: #A stjórn fiskveiða# (veiðileyfi o.fl.) frv. 1/1999, 344. mál: #A veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands# (grásleppuveiðar) frv., SvanJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 45. fundur, 123. lþ.

[17:47]

Svanfríður Jónasdóttir (andsvar):

Herra forseti. Það var ég sem gaf hv. þingmanni þá einkunn sem hér kom fram að gefnu tilefni. Ég óska eftir því að þegar hann gefur einkunnir af því tagi sem hann gerði í sinni ræðu að þá greini hann á milli, einfaldlega vegna þess að sá hópur sem hann gaf einkunn áðan er býsna stór og verðskuldar ekki þá einkunn.