Lúðvík Bergvinsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég vil taka undir það með hv. síðasta ræðumanni að vitaskuld eiga menn að styðja mál sitt rökum. Það er grundvallaratriði ef við ætlum að halda uppi vitrænni umræðu, að menn styðji mál sitt rökum.
Ég heyrði ekki alla ræðu hv. þm. en heyrði upphafið af henni og talsvert hér í lokin. Tilgangur þess að ég kem hér upp núna er að óska eftir því að hann rökstyðji eða skýri niðurlagsorð ræðunnar sem hann flutti hér áðan. Hann sagði eitthvað á þá leið að árásir á efnahagslegan stöðugleika væru nánast landráð.
Mín spurning er þessi: Hverjir hafa verið með árásir á efnahagslegan stöðugleika og við hvað á hann þegar hann setur fram skoðanir af þessu tagi? Þetta eru mjög stór orð? Ég tel nauðsynlegt, þegar menn setja fram jafnstór orð og í þessu tilviki, að þau séu skýrð frekar.