Lúðvík Bergvinsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég vil aðeins segja að ég er ekki alveg sammála hv. þm. um að meginverk okkar á hinu háa Alþingi sé það eitt að skapa hér eða búa til efnahagslegt umhverfi. Takmark okkar ætti fyrst og fremst að vera að búa okkur gott samfélag. Það er markmiðið og hefur náttúrlega miklu víðfeðmari skírskotun en einungis til hinna efnahagslegu þátta, sem betur fer. Hv. þm. þekkir það mætavel.
Ég skildi svar hans þannig að í raun og veru hefði hann ekki verið að vísa til nokkurs, það var kannski það sem ég var að reyna að draga fram. Hann var ekki að vísa til þess að nokkur í þessari umræðu hefði kannski sett fram viðhorf sem jöðruðu við landráð. Ég skildi hv. þm. þannig að hann hefði ekki átt við neitt slíkt og það er vel.