Frsm. minni hluta félmn. (Pétur H. Blöndal):
Herra forseti. Fyrst langar mig til að ræða rétt aðeins um íslensku, þ.e. hvað þýðir barn á íslensku. Í mínum huga er fólk sem er yngra en tólf ára börn. Fólk sem er á aldrinum 13--19 ára eru unglingar í mínum huga og fólk sem er eldra er fullorðið.
Nú hefur komið sú regla utan úr heimi að fólk sem er yngra en 18 ára skuli vera börn. Og ég er á móti því að breyta málvitund með þessum hætti, setja inn í lög eitthvað sem almenningur notar öðruvísi. Við það myndast gjá á milli þeirra sem túlka lögin og almennings. Hins vegar legg ég ekki til að þessu verði breytt í þessum lagabálki vegna þess að þetta er komið inn í öll lög meira og minna og það yrði að taka á því alls staðar. Ég tel að það eigi að nota það tungumál sem Íslendingar tala en ekki einhverjar skilgreiningar utan úr heimi þegar lög eru samin.
Herra forseti. Samkvæmt 24. gr. frv. er gert ráð fyrir því að barnaverndarnefnd skipi barni talsmann. Við þessa tilhögun hef ég eftirfarandi að athuga:
Mörg mál sem koma til kasta barnaverndarnefnda eru viðkvæmustu mál sem yfirvöld fjalla um yfirleitt. Þar er t.d. um að ræða vistun unglings á opinberri stofnun gegn vilja hans eða að taka barn af heimili foreldra sinna, hvort tveggja ákaflega viðkvæm mál. Þó að barnaverndarnefnd starfi með hagsmuni barnsins í huga er hún engu að síður óvinur barnsins frá þess sjónarhorni séð. Þegar á að fara að taka barn frá foreldrum þess þá getur barnið ekki litið á barnaverndarnefnd sem vin sinn eða þegar á að vista ungling á stofnun gegn vilja hans þá mun hann aldrei líta á barnaverndarnefnd sem vin sinn.
Þess vegna tel ég að sá talsmaður sem barnaverndarnefnd skipar sjálf eigi trauðla trúnað unglingsins eða barnsins, og alveg sérstaklega ef barnaverndarnefnd skyldi nú skipa þennan talsmann úr sínum röðum, sem ekkert hindrar samkvæmt frv.
Þess vegna legg ég til að talsmaður barnsins verði skipaður af umboðsmanni barna sem hefur sýnt sig hafa mikinn skilning á málefnum þeirra og hafa náð, að mér sýnist, trúnaði barna víða um land. Það hafa komið fram rök um að umboðsmaður barna eigi ekki að skipta sér af einstökum málum. (Gripið fram í: Það stendur í lögunum.) Já, það stendur í lögunum. En minni hlutinn leggur til að umboðsmaður skipi barninu talsmann en sé ekki að skipta sér af málinu að öðru leyti. Þetta er nákvæmlega sama og þegar Hæstiréttur er að skipa menn í alls konar gerðardóma. Það er ekki þar með sagt að Hæstiréttur sé að skipta sér af málinu, hann er ekkert að standa í þeirri framkvæmd þannig að ég sé ekkert á móti því að þetta sé gert, og því leggur minni hlutinn til að frv. verði samþykkt með eftirfarandi breytingu, með leyfi forseta:
,,Barnaverndarnefnd ber að skipa barni talsmann samkvæmt tilnefningu umboðsmanns barna til að gæta hagsmuna þess ef þörf krefur.``