Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Dagskrá þessa fundar liggur þegar fyrir og ekki um það að ræða að mál verði tekið á dagskrána eftir að fundur er settur. En það verða fleiri fundir haldnir í dag og þetta mál sem verður byrjað á á þessum fundi verður rætt sérstaklega strax eftir framsögu hæstv. ráðherra. Um það er samkomulag. Nægir þetta ekki?