Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):
Herra forseti. Vissulega eru hér breytingar sem koma lífeyrisþegum til góða, þ.e. kjarabót fyrir lífeyrisþega. En það er verið að lögfesta hér atriði sem hingað til hafa verið í reglugerð. Ráðherra leggur mikla áherslu á að þetta verði lögfest fyrir áramót til þess að lífeyrisþegar geti fengið greiðslu samkvæmt þessu fyrir áramót. Ég spyr hæstv. ráðherra: Hvers vegna breytir hún ekki bara reglugerðinni sem hún hefur full tök á án þess að spyrja þingið um leyfi? Þannig getur hún náð þessum kjarabótum fyrir lífeyrisþegana fram. Finnst ráðherra eðlilegt að lögfesta atriði sem færustu lögfræðingar telja brot á stjórnarskránni og brot á alþjóðasáttmálum sem við erum aðilar að? Og er ráðherra tilbúinn að fara í gegnum þessa lögfestingu og fá á sig enn einn dóminn? Eins og ráðherra veit, þá er Öryrkjabandalagið að undirbúa lögsókn vegna þessa ákvæðis.