Almannatryggingar

Laugardaginn 19. desember 1998, kl. 10:34:47 (2699)

1998-12-19 10:34:47# 123. lþ. 46.13 fundur 365. mál: #A almannatryggingar# frv. 149/1998, heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 46. fundur, 123. lþ.

[10:34]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Til að breyta frítekjumörkunum eins og gert er ráð fyrir í þessu frv. verður að breyta lögum. Þannig er það. Af hverju eru lögin skýrð eins og hér er? Það er vegna þess að umboðsmaður Alþingis hefur bent á að æskilegt væri að skýra lagatextann betur.