Fjárlög 1999

Laugardaginn 19. desember 1998, kl. 16:05:33 (2755)

1998-12-19 16:05:33# 123. lþ. 46.15 fundur 1. mál: #A fjárlög 1999# frv. 165/1998, Forseti GÁ
[prenta uppsett í dálka] 46. fundur, 123. lþ.

[16:05]

Forseti (Guðni Ágústsson):

Forseti vill segja um þetta að það heyra það nú allir, hvað sem virðingunni líður, að hv. 2. þm. Austurl., formaður fjárln., hefur fyrir sitt leyti fallist á að að þessu sinni verði umræðan slitin í sundur á þennan hátt því að það er stórt verkefni að ætla að ljúka störfum Alþingis fyrir jól á þeim tíma sem eftir er til miðnættis.