Guðmundur Árni Stefánsson (um fundarstjórn):
Herra forseti. Ég sagði áðan að ekki ætla ég að ganga á mót óskrifuðu samkomulagi sem gert hefur verið. Ég vildi hins vegar halda því mjög ákveðið til haga að það er eðlilegt og sjálfsagt að sýna fjárlagaumræðu, hvort heldur það er 2. umr. eða 3. umr., verðugan sóma en það er auðvitað ekki gert á þennan hátt. Því vil ég kasta því fram til umhugsunar í komandi framtíð að menn festi það einfaldlega í þingsköp, tiltekna ákveðna heilaga daga í desembermánuði, hvenær 2. umr. fjárlaga eigi að fara fram og hvenær 3. umr. og því verði ekkert breytt, það verði einfaldlega bundið í lög að hugsanlega 8. desember fari fram 2. umr. og eigi síðar en 16. desember 3. umr. þannig að þessari mikilvægu umræðu verði sýndur verðugur sómi og eðlilegur eins og öll efni standa til. Meira var það nú ekki.