Samningar um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum 1999

Laugardaginn 19. desember 1998, kl. 21:11:54 (2817)

1998-12-19 21:11:54# 123. lþ. 47.17 fundur 296. mál: #A samningar um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum 1999# þál., Frsm. TIO
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 123. lþ.

[21:11]

Frsm. utanrmn. (Tómas Ingi Olrich):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. um till. til þál. um staðfestingu samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 1999.

Nefndin hefur fjallað um tillöguna og fengið á sinn fund Helga Ágústsson og Eið Guðnason frá utanrrn. og Kristján Skarphéðinsson frá sjútvrn. Utanrmn. óskaði eftir umsögn sjútvn. um málið og er sú umsögn meðfylgjandi nál.

Í umsögn sjútvn. kemur fram að nefndin hefur fengið á sinn fund Kristján Skarphéðinsson, Arnór Halldórsson og Kristínu Halldórsdóttur frá sjútvrn. og mælir nefndin með samþykkt tillögunnar, en minni hlutinn, sem skipaður er Lúðvíki Bergvinssyni og Svanfríði Jónasdóttur, vísar jafnframt til afstöðu í umsögn sjútvn. sem send var utanrmn. vorið 1996 þegar upphaflegi samningurinn um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum var til umfjöllunar á Alþingi.

Í tillögunni er gert ráð fyrir að samkomulag um veiðar úr norsk-íslenska stofninum á árinu 1999 verði óbreytt frá samkomulaginu fyrir árið 1998.

Hv. þingmenn Guðný Guðbjörnsdóttir og Steingrímur J. Sigfússon, sem eru áheyrnarfulltrúar á fundum nefndarinnar, eru samþykk áliti þessu. Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt en undir nál. skrifa Tómas Ingi Olrich, formaður og framsögumaður, Össur Skarphéðinsson, Árni Ragnar Árnason, Margrét Frímannsdóttir, Lára Margrét Ragnarsdóttir, Árni Mathiesen, Sighvatur Björgvinsson, Siv Friðleifsdóttir og Gunnlaugur M. Sigmundsson.