Tekjuskattur og eignarskattur

Laugardaginn 19. desember 1998, kl. 21:32:41 (2826)

1998-12-19 21:32:41# 123. lþ. 47.21 fundur 278. mál: #A tekjuskattur og eignarskattur# (jöfnunarhlutabréf, dótturfélög o.fl.) frv. 154/1998, Frsm. VE
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 123. lþ.

[21:32]

Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. og brtt. frá efh.- og viðskn. vegna frv. til laga um breyting á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt.

Brtt. koma fram á þskj. 538 og eru í einum sex liðum, við 3. gr. og 5. gr. Síðan er brtt. um nýja grein og brtt. við 6. gr., við 7. gr. og við 12. gr. Allar þessar brtt. koma fram á þskj. 538 og um þær rætt í nál. sem er á þskj. 537 og ég mun ekki gera frekari grein fyrir.