1998-12-20 00:43:04# 123. lþ. 47.1 fundur 173. mál: #A fjáraukalög 1998# frv. 162/1998, SJóh (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 123. lþ.

[24:43]

Sigríður Jóhannesdóttir:

Hæstv. forseti. Að mati Ríkisendurskoðunar stefnir í að við séum að afgreiða frv. um fjáraukalög fyrir 1998 með 9--10 milljarða kr. halla. Þarna skeikar miklu frá áætlunum sem voru gerðar fyrir ári um hallalaus fjárlög. Ég tek ekki þátt í þessum jólabakstri og sit hjá við atkvæðagreiðsluna.