1998-12-20 00:52:16# 123. lþ. 47.2 fundur 1. mál: #A fjárlög 1999# frv. 165/1998, ArnbS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 123. lþ.

[24:52]

Arnbjörg Sveinsdóttir:

Hæstv. forseti. Hér er verið að greiða atkvæði um aukið framlag til jöfnunar á námskostnaði. Sá mikli kostnaður við að senda unglinga á framhaldsskólaaldri til náms úr dreifbýli til þéttbýlis er mörgum heimilum í dreifbýlinu ofviða. Þetta kemur m.a. í ljós í þeim rannsóknum sem liggja bað baki byggðatillögu forsrh. Við þessu er nauðsynlegt að bregðast og hér er áfangi í þá átt að jafna þennan námskostnað. Ég segi að sjálfsögðu já.