Ásta R. Jóhannesdóttir:
Herra forseti. 20 börn bíða í brýnni þörf eftir úrræðum Barnaverndarstofu hjá barnaverndarnefnd Reykjavíkur. Þá eru ótalin öll þau börn sem bíða annars staðar á landinu. Það er ársbið eftir þessum úrræðum. Þessi fjárveiting er til að minnka þennan alvarlega vanda en fjárveitingin sem er ætlað í þetta í fjárlögum mun á engan hátt leysa þetta alvarlega mál. Ég segi já.