Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde):
Herra forseti. Hér eru að verða þau tíðindi sem ég hygg að séu nær einsdæmi í íslenskri hagsögu að fjárlög eru afgreidd með meiri afgangi heldur en það fjárlagafrv. sem lagt var fram. (ÁRJ: Eigum við ekki að spyrja að leikslokum?) Afgangurinn af fjárlögunum hefur aukist um 600 millj. í meðförum Alþingis. Ég vil nota þetta tækifæri til þess að þakka fjárlaganefndarmönnum, bæði meiri hluta og minni hluta, fyrir ábyrg störf að undanförnu í þessu máli. Það liggur fyrir að á þessu ári og næsta munum við geta greitt niður af skuldum ríkissjóðs um það bil 32 milljarða kr. og það munar um minna.
Ísland er nú eitt af örfáum ríkjum innan OECD þar sem ríkissjóður er rekinn með afgangi, en þrátt fyrir þetta höfum við verið að leggja stórfé í ýmis þörf og góð málefni þótt auðvitað hafi ekki verið hægt að koma til móts við allar óskir. En eins og kunnugt er höfum við verið að gera sérstakt átak, nú síðast með því að setja 500 millj. kr. aukalega í almannatryggingar, með því að veita stórfé til byggðamála og taka á ýmsum öðrum vandamálum sem nauðsyn var að taka á. Ég tel að þetta séu merk tíðindi, herra forseti, og ég fagna því mjög hvað þingið hefur sýnt ábyrga afstöðu í þessari vinnu.