Sigríður Jóhannesdóttir:
Hæstv. forseti. Hér voru í byrjun þings lögð fram góðærisfjárlög, sólskinsfjárlög voru þau kölluð, hallalaus fjárlög. Eftir því sem liðið hefur á þingið hefur gjaldahliðin farið úr böndunum og svo kom að lokum að verulega hallaðist á. Þá var tekjuhliðin tekin, hnoðuð upp úr smjöri og teygð yfir eldi og löguð til þangað til hallinn var horfinn. Mér finnast þetta ekki traustvekjandi vinnubrögð í fjárlagagerð og greiði því ekki atkvæði.