1999-03-25 10:49:38# 123. lþ. 91.2 fundur 254. mál: #A stjórnarskipunarlög# frv. +, HG (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 91. fundur, 123. lþ.

[10:49]

Hjörleifur Guttormsson:

Virðulegur forseti. Með þeirri stjórnarskrárbreytingu sem hér er verið að lögleiða og breyttri kjördæmaskipan í kjölfarið er verið að stíga afleitt og afdrifaríkt skref. Búin verða til þrjú risastór landsbyggðarkjördæmi þvert á hefðbundin samvinnuform fólks og byggðarlaga. Norðurland verður skorið í tvennt, Austurland svipt stöðu sem það hefur haft frá þjóðveldisöld og höfuðborgin bútuð sundur í tvö kjördæmi.

Þessi breyting verður til að sundra en ekki sameina og mun veikja félagslega stöðu landsbyggðarinnar. Nær hefði verið að koma á fjórðungaskipan með lýðræðislegu valdi, heimavaldi, og gera síðan landið að einu kjördæmi til Alþingis.

Ég harma þá niðurstöðu sem misvitur meiri hluti ætlar að innsigla. Ég segi nei, herra forseti.