Ferill 511. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 1021  —  511. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um Kennaraháskóla Íslands, nr. 137/1997.

Frá menntamálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Þóri Ólafsson, rektor Kennarahá­skóla Íslands, og Arndísi Hilmarsdóttur og Sigurð Sigurðarson frá nemendaráði Kennarahá­skóla Íslands.
    Lagt er til að bætt verði við lögin sérstökum kafla sem fjalli um kennslu, framkvæmd prófa og agaviðurlög. Þá er lagt til að bætt verði við ákvæði um heimild til gjaldtöku fyrir ýmsa þjónustu sem skólinn veitir og heimild til að semja við ýmsa aðila um að taka að sér þjónustu fyrir skólann. Einnig er lagt til að háskólinn hafi sams konar heimildir og aðrar há­skólastofnanir til að veita doktorsnafnbót.
    Breytingarnar auka við almennar heimildir skólans á mikilvægum sviðum og kveða einnig skýrar á um réttarstöðu stúdenta. Settar eru skýrari reglur um málsmeðferð í máli stúdents hafi hann gerst sekur um brot á lögum eða öðrum reglum háskólans eða framkoma hans er talin ósæmileg eða óhæfileg. Þegar endanleg ákvörðun liggur fyrir eftir málsmeðferð innan skólans á stúdent þess kost að skjóta máli sínu til sérstakrar áfrýjunarnefndar sem hefur endanlegt úrskurðarvald.
    Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins með breytingum sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali. Þær eru gerðar í þeim tilgangi að samræma hugtakanotkun laganna.
    Árni Johnsen og Ólafur Örn Haraldsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 5. mars 1999.



Sigríður A. Þórðardóttir,


form., frsm.


Kristín Ástgeirsdóttir.


Guðný Guðbjörnsdóttir.



Svanfríður Jónasdóttir.


Arnbjörg Sveinsdóttir.


Tómas Ingi Olrich.



Hjálmar Árnason.