Ferill 252. máls. Ferill 253. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 1096  —  252. og 253. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr 16/1973, um happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna, og frv. til l. um breyt. á l. nr. 18/1959, um vöruhappdrætti fyrir Samband íslenskra berklasjúk­linga.

Frá allsherjarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málin.
    Í frumvörpunum er lagt til að umræddum happdrættum verði heimilt að reka peningahapp­drætti og með því verði staða þeirra bætt.
    Happdrættismarkaðurinn hefur þróast ört á undanförnum árum. Happdrættum hefur fjölgað og samkeppni milli þeirra aukist. Þetta hefur m.a. leitt til þess að happdrætti Dvalar­heimilis aldraðra sjómanna og Sambands íslenskra berklasjúklinga hafa þurft að horfa upp á samdrátt ár frá ári.
    Nefndin hefur skilning á vanda umræddra happdrætta og tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í frumvörpunum, en þar sem Happdrætti Háskóla Íslands hefur nú einkarétt á peningahappdrætti samkvæmt lögum nr. 13/1973, með síðari breytingum, telur nefndin ekki unnt að leggja til að þau verði samþykkt. Nefndin telur eðlilegt að happdrættismarkaðurinn í heild verði tekinn til skoðunar og að sett verði ein heildarlög um happdrætti og leggur til að málunum verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
    Kristján Pálsson og Hjálmar Jónsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 9. mars 1999.



Valgerður Sverrisdóttir,


varaform., frsm.


Jón Kristjánsson.


Árni R. Árnason.



Svanhildur Árnadóttir.


Ögmundur Jónasson.


Jóhanna Sigurðardóttir.



Kristín Halldórsdóttir.