Aldursforseti (Halldór Ásgrímsson):
Eins og fram kom í áliti kjörbréfanefndar leggur kjörbréfanefnd einróma til í skriflegri tillögu, sem ég vænti að hv. þm. hafi nú fyrir framan sig, að þau kjörbréf sem nefndin hefur samræmt og prófað verði samþykkt og kosning og kjörgengi þingmanna og jafnmargra varamanna verði tekin gild. Tillaga þessi verður borin upp í einu lagi og skoðast samþykkt ef enginn hreyfir andmælum.