Aldursforseti (Halldór Ásgrímsson):
Nú fer fram kosning forseta Alþingis. Samkvæmt 1. mgr. 3. gr. þingskapa eru þeir einir í kjöri sem eru tilnefndir.
Mér hefur borist tilnefning um 1. þm. Norðurl. e., Halldór Blöndal.
Aðrar tilnefningar hafa ekki borist og er því hv. 1. þm. Norðurl. e., Halldór Blöndal, einn í kjöri.
Þar sem aðeins einn er í kjöri er það ætlun forseta að atkvæðagreiðslan fari fram eins og á undangengnum þingum. Ef ekki eru athugasemdir við þennan hátt á kosningunni þá hefst atkvæðagreiðslan.