Rannveig Guðmundsdóttir:
Herra forseti. Ég vil byrja á því að óska virðulegum forseta til hamingju með kjör í embætti forseta og vænti þess að við þingflokksformenn og forseti munum eiga gott samstarf á því þingi sem nú fer í hönd og síðar.
Herra forseti. Það sem ég vil koma á framfæri hér varðar starf þeirra nefnda sem verða kosnar á eftir og munu margar hverjar funda í fyrramálið. Athugasemdirnar sem ég ætla að flytja eru þessar:
Í ljósi aðvarana sem bæði innlendar og erlendar stofnanir á sviði efnahagsmála hafa sett fram um nauðsyn þess að slá á þenslu í efnahagslífinu er það eindregin skoðun þingflokks Samfylkingarinnar að óhjákvæmilegt sé að stjórnvöld og Alþingi sameinist nú um aðgerðir til að draga til baka eða fresta boðuðum hækkunum á bensíngjaldi og gjaldskrá Landsvirkjunar.
Til að fylgja þessu eftir hefur þingflokkurinn ákveðið að leggja fram frv. til laga um að hætt verði við hækkun bensíngjalds. Jafnframt beinum við þeim eindregnu tilmælum til iðnrh. að hann beiti sér þegar í stað fyrir því að gjaldskrárhækkunum Landsvirkjunar verði frestað.
Herra forseti. Mér finnst miður að ráðherrann skuli ekki vera hér þannig að ég geti beint þessum orðum mínum til hans strax.
Þingflokkurinn telur einnig brýnt að Fjármálaeftirlitið hraði athugun sinni á forsendum iðgjaldahækkunar tryggingafélaganna þannig að Alþingi gefist ráðrúm til að fjalla ítarlega um þær á yfirstandandi þingi. Þingflokkurinn bendir jafnframt á að enn er ekki búið að setja reglugerð á grundvelli laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi sem heimilar Fjármálaeftirlitinu að grípa til hæfilegra viðurlaga gagnvart tryggingafélögunum verði þau uppvís að ósanngjörnum hækkunum. Við skorum á hæstv. ráðherra að setja reglugerðina sem allra fyrst.
Vinnubrögð tryggingafélaganna í aðdraganda hækkunarinnar gefa enn fremur fullt tilefni til að Samkeppnisstofnun kanni hvort félögin hafi beitt ólögmætu samráði um hækkunina.
Að lokum vil ég, herra forseti, að það komi fram að fulltrúum Samfylkingarinnar í allshn., efh.- og viðskn., iðnn. og fjárln. hefur verið falið að fylgja þessum málum eftir á því þingi sem nú fer í hönd. Ég treysti því að við munum eiga gott samstarf um þessi brýnu mál og að vel verði tekið í málaleitan þingmanna okkar í nefndum um að taka mál upp og kalla fólk til.
(Forseti (HBl): Hæstv. ríkisstjórn og hv. þingmenn hafa heyrt orð hv. þm.)