Steingrímur J. Sigfússon (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir og nú bregður svo við að við erum í öllum aðalatriðum sammála. Ég tel að einmitt þetta sem hæstv. forsrh. kemur hér inn á sé allrar athygli vert. Ég hef oft upplifað það að stjórnarskrárbreytingar eru gerðar nákvæmlega svona, að í raun er fyrst farið að huga að þeim þegar skammt er til kosninga, af þeirri einföldu ástæðu að menn vilja ekki vera með þá heitu kartöflu mikið í höndunum að þeir séu búnir að breyta stjórnarskránni löngu áður en ganga á til kosninga. Þar af leiðandi væri vel athugandi að a.m.k. svigrúmið að þessu leyti væri rýmra en það er samkvæmt gildandi ákvæðum stjórnarskrárinnar.
Ég nefni í öðru lagi það sem ég hef komið hér inn á í sambandi við að staðfestingin fari öðruvísi fram en nú er, að um annaðhvort tvöfalda kosningu eða sjálfstæða kosningu verði að ræða. Þessi skoðanaskipti okkar hæstv. forsrh., herra forseti, leiða mig að því að spyrja --- mér er ljóst að hæstv. forsrh. getur ekki svarað nú heldur væntanlega í lok umræðunnar eða þegar hann kýs að taka aftur til máls: Erum við ekki að komast að þeirri niðurstöðu að tímabært sé að skipa á nýjan leik stjórnarskrárnefnd? Hér starfaði lengi stjórnarskrárnefnd. Hún þótti ein fínasta nefnd lýðveldisins og lauk nú ekki störfum. Þó kom ýmislegt gott út úr starfi hennar eða að hluta til í framhaldi af starfi hennar, t.d. nýr mannréttindakafli stjórnarskrárinnar sem ég hygg að hafi notið góðs af því mikla starfi sem búið var að vinna í merkum stjórnarskrárnefndum undir forustu manna eins og Gunnars heitins Thoroddsens og Matthíasar Bjarnasonar. Hins vegar strönduðu flestar vinnulotur í stjórnarskrárnefndum á því að menn lögðu ekki í kosningaákvæðin. Nú er verið að afgreiða þau. En það eru fjölmörg önnur ákvæði í stjórnarskránni og þetta sem við höfum rætt hér, um staðfestingu breytinga stjórnarskrárinnar, finnst mér kalla á að ný stjórnarskrárnefnd verði sett á laggirnar. Ég beini þeim tilmælum til hæstv. forsrh. að hann skoði nú hug sinn um það hvort ekki sé rétt að undirbúa að skipuð verði á nýjan leik stjórnarskrárnefnd.