Ögmundur Jónasson (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég þakka sannast sagna guði fyrir að þessir menn hafa ekki her á eigin snærum. Það er nákvæmlega svona sem stríðin verða til. Þarna sitja tveir oddvitar ríkisstjórnarinnar, hæstv. utanrrh. og hæstv. forsrh., handhafar sannleikans, handhafar réttlætisins og eru að réttlæta það fyrir okkur að gerðar hafi verið einhverjar mestu árásir á byggð ból í áratugi í Evrópu. Það er búið að valda ósegjanlegu tjóni á mannvirkjum og á umhverfinu, sem helst má ekki ræða að mati hæstv. forsrh. Það er búið að drepa mörg hundruð óbreyttra borgara, ef ekki þúsundir, og valda ómældu tjóni til frambúðar.
Við erum að ræða þetta og hvetja til þess að Alþingi Íslendinga fái lýðræðislegan vettvang til að ræða um þessi mál og fjalla um þau. En því er svarað með þessum hætti, með þjósti og hroka og vissu þess manns sem telur að hann hafi umboð til þess að fyrirskipa árásir líkt og NATO hefur framkvæmt á Balkanskaga á liðnum vikum.
Mér óar við þessu og þakka fyrir að þessir menn skuli ekki hafa her á eigin snærum.