Fyrirhugaðar heræfingar NATO á Íslandi

Mánudaginn 14. júní 1999, kl. 13:59:08 (161)

1999-06-14 13:59:08# 124. lþ. 4.1 fundur 52#B fyrirhugaðar heræfingar NATO á Íslandi# (óundirbúin fsp.), KolH
[prenta uppsett í dálka] 4. fundur, 124. lþ.

[13:59]

Kolbrún Halldórsdóttir:

Virðulegi forseti. Í fréttum síðustu daga hefur komið fram að fyrirhugaðar heræfingar NATO á Íslandi verði þess eðlis að þar verði æfðar aðgerðir gegn öfgafullum umhverfisverndarsinnum. Nú langar mig til að spyrja hæstv. umhvrh.:

Hvernig líst honum á þá hugmyndafræði sem liggur að baki heræfingunum og hyggst ráðherrann gera einhverjar athugasemdir við þær?