Dómsmálaráðherra (Sólveig Pétursdóttir):
Hæstv. forseti. Ég er nokkuð undrandi á viðbrögðum hv. þm. Það er búið að vinna að þessu máli í lengri tíma. Þetta er ekkert nýtt. Reyndar fékkst heimild til þess árið 1996 að leigja sérstakt viðbótarhúsnæði fyrir þessa aðstöðu á fjórðu hæð í dómshúsinu við Lækjartorg og unnið hefur verið að verkefninu síðan.
En ég vil rifja það upp fyrir hv. þingmönnum að markmið þessarar aðstöðu er fyrst og fremst að vernda brotaþola, einkum börn og unglinga, og reyna að tryggja að þau verði fyrir sem minnstri röskun vegna nauðsynlegra yfirheyrslna í tengslum við rannsóknir og dómsmeðferð í erfiðum sakamálum. Og sérstakur dómsalur með viðeigandi tækjabúnaði tengist þessari aðstöðu.
Eins og hér hefur verið bent á er þörfin líka brýn vegna þeirra lagabreytinga sem hafa verið gerðar en þær breytingar eiga m.a. rætur að rekja til þess að skýrsla umboðsmanns barna til dómsmrh. sem kom út haustið 1997 benti á að eftir að borin höfðu verið saman lagaákvæði á Norðurlöndum kom í ljós að staða barna hér á landi var að sumu leyti lakari. Hér hefur því verið bætt úr.