Arnbjörg Sveinsdóttir (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég tek eftir þessu orðalagi, hreinan skjöld. Eru framkvæmdir sem menn fara í yfir höfuð á hálendi Íslands á einhvern hátt glæpsamlegar? Ég get ekki séð að mönnum hafi fundist það fram til þessa. En þegar kemur að framkvæmdum á hálendi norðan Vatnajökuls sem Austfirðingar hafa væntanlega einhvern hag af þá þykir allt í einu ástæða til þess að nota slíkt orðalag. Mér finnst afar sérstakt hvernig málið er sett upp og hef ekki fengið svör við því hverju hv. þm. hyggst ná fram með umhverfismati.