Mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar Fljótsdalsvirkjunar

Mánudaginn 14. júní 1999, kl. 17:29:54 (226)

1999-06-14 17:29:54# 124. lþ. 4.4 fundur 3. mál: #A mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar Fljótsdalsvirkjunar# þál., ÖS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 4. fundur, 124. lþ.

[17:29]

Össur Skarphéðinsson (andsvar):

Herra forseti. Ég veit ekki hvar hv. þm. hefur verið við þessa umræðu. Hún hefur kannski verið í símanum að tala við þá ágætu menn sem stýra Landsvirkjun eða tala við sérfræðinga iðnrn. þegar hv. þm. Rannveig Guðmundsdóttir kvaddi sér hljóðs og gerði grein fyrir afstöðu þingflokks Samfylkingarinnar. Það gerði hún hér í dag og ég vísa til þess.