Flm. (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir svörin og það að hann ítrekar þá skoðun sem hann hefur reyndar sett fram áður varðandi hækkun á iðgjöldunum og ég vona að því verði fylgt fast eftir af hálfu ríkisstjórnarinnar þegar Fjármálaeftirlitið hefur lokið skoðun sinni. Og ef það kemst að því að um óeðlilega hækkun hafi verið að ræða þá fái Fjármálaeftirlitið atbeina ríkisstjórnar og ráðherra til þess að beita nauðsynlegum úrræðum til að hækkanirnar verði þá dregnar til baka.
Þetta er auðvitað flókið með vísitöluna og svolítið nýtt og framandi fyrir okkur hvernig þetta er sett fram. Ég tel mjög nauðsynlegt að við förum betur ofan í það og hefði talið ástæðu til þess ef tími hefði verið til af hálfu efh.- og viðskn. að hún hefði farið ofan í málið með Hagstofunni til þess að gera sér nákvæmlega grein fyrir því hvaða áhrif þetta geti haft í framtíðinni.
En ég þakka hæstv. ráðherra svörin.