Vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.

Þriðjudaginn 15. júní 1999, kl. 14:50:01 (288)

1999-06-15 14:50:01# 124. lþ. 6.1 fundur 9. mál: #A vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.# frv., forsrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 6. fundur, 124. lþ.

[14:50]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar):

Herra forseti. Á hinn bóginn varðandi vísitöluna vil ég nefna það, sem kom fram hjá hv. þm., að gagnstætt öðrum löndum reiknum við fasteignaverð inn í neysluvöruvísitöluna, það gera ekki aðrar þjóðir, og neysluverð vísitölunnar hjá okkur hefur hækkað verulega vegna fasteignaverðshækkana. Ef fasteignaverðshækkanirnar væru teknar frá værum við með lægri verðbólgu en víðast hvar gildir í Evrópu.