Vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.

Þriðjudaginn 15. júní 1999, kl. 15:00:38 (297)

1999-06-15 15:00:38# 124. lþ. 6.1 fundur 9. mál: #A vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.# frv., Flm. JóhS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 6. fundur, 124. lþ.

[15:00]

Flm. (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar):

Herra forseti. Ég skal ekkert rengja það sem hæstv. iðnrh. setur upp varðandi þróunina á verði eins og hann sýnir hér í töfluformi. Hæstv. iðnrh. verður bara að skilja það hver tilgangur okkar hjá þingflokki Samfylkingarinnar er með því að setja þetta fram. Það eru þau áhrif sem þessar hækkanir, ekki bara gjaldskrárhækkanir Landsvirkjunar, heldur iðgjaldaákvarðanir tryggingafélaganna og bensínhækkunin hefur á verðbólguna og þróun skulda heimilanna. Við erum einungis að tala um að fresta þessari hækkun til að reyna að hægja á verðbólguhjólinu. Ég hélt að við ættum það nú sameiginlegt, hæstv. iðnrh. og ég, að vilja draga úr verðbólgunni en ekki auka hana.