Vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.

Þriðjudaginn 15. júní 1999, kl. 16:44:35 (320)

1999-06-15 16:44:35# 124. lþ. 6.1 fundur 9. mál: #A vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.# frv., ÁGunn (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 6. fundur, 124. lþ.

[16:44]

Árni Gunnarsson (andsvar):

Herra forseti. Árangur núverandi ríkisstjórnar og þeirrar ríkisstjórnar sem sat á undan henni í efnahagsmálum byggist á því að menn náðu tökum á skuldasöfnun ríkissjóðs. Það skulu vera lokaorð mín í þessari umræðu að ég sé það ekki af frv. að menn séu að leggja til neitt annað en að fresta því að endurgreiða lánsfé. Við getum ekki slegið víxla út á það sem væntanlega kemur inn af þessu gjaldi. Við höfum engar forsendur til þess að gefa okkur að það gefi okkur miklu meira. Það er þá hlutur sem menn geta skoðað í árslok eða þegar að uppgjöri kemur.