Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):
Herra forseti. Þetta er alveg rétt hjá hv. þm., venja stendur ekki til þess að ráðherra sé leystur af ef hann er staddur í landinu heldur eingöngu þegar hann fer af landi brott. Það er engin ástæða til þess í mínum huga að hafa þau skil með þeim hætti lengur. Meira að segja ráðherrar sem eru erlendis geta mjög vel sinnt margvíslegum þáttum með þeirri tækni sem nú er fyrir hendi ekkert síður en menn sem staddir eru hérlendis. Stundum gengur það meira að segja verr hérlendis, ég tala nú ekki um ef menn eru inni í óbyggðum að þá getur orðið erfitt að ná símasambandi o.s.frv.
Ég tel því að þetta sé rétt ábending. Við þurfum að huga að því að hafa á þessu fastara form. En reyndar tel ég að án formlegra reglna geti einhver af ráðherrunum svarað fyrirspurnum hér í umboði eða að beiðni viðkomandi ráðherra og það hefur reyndar verið gert. Ég mælti t.d. fyrir máli einmitt fyrir þennan sama ráðherra óvænt þegar hann hafði forfallast á sínum tíma og ég tel að það ætti að vera hægt. Við skulum því athuga þetta fyrirkomulag betur.