Össur Skarphéðinsson (andsvar):
Herra forseti. Hæstv. ráðherra kýs auðvitað hvaða tón hann setur í samskipti stjórnarandstöðunnar og hans sjálfs í umræðum um fjármál ríkisins. En ég verð að segja, herra forseti, að mér er ekki skemmt yfir þeim hrokafulla tóni sem er í máli hæstv. fjmrh.
Ég vísa til þess sem menn kölluðu hér í gamla daga og móðir mín kenndi mér, að sá tónn sem hann notar og sú framkoma, þessi hrokafulla framkoma hans í garð okkar, fellur undir það sem hún kallaði í uppeldi mínu að hreyta skít í fólk. Og ef hæstv. ráðherra vill halda uppteknum hætti og hreyta skít í fólk þá er mér auðvitað alveg sama um það. Ég og aðrir eru í fullkomnum, lýðræðislegum rétti til að reyna að toga með glóandi töngum upplýsingar út úr starfsmönnum hæstv. fjmrh.
Hæstv. fjmrh. var ekki á þeim fundi sem hann kvartar yfir að ég fór fram á og við þingmenn Samfylkingarinnar í morgun. Það getur vel verið að hann hafi yfirheyrt starfsmenn sína um hvað þar fór fram. Túlkun mín á þeim upplýsingum sem þar voru dregnar upp úr fulltrúum hans, nauðugum viljugum, voru þessar:
Fyrir liggur að tekjur ríkisins hafa aukist um 4 milljarða en útgjaldaaukinn er líklega 3 milljarðar. Það liggur fyrir að munurinn er sennilega milljarður. Það liggur líka fyrir að vegna aukins innflutnings dísilbifreiða og vegna aukinna flutninga á landi þá hefur þungaskattur aukist talsvert mikið. Ég veit ekki hversu mikið vegna þess að fulltrúar ráðherra vildu ekki segja það. Sennilega hefur þeim verið bannað það. Ég dreg það í efa sem hæstv. ráðherra sagði, að ég hefði ekki annað haft upp úr krafsinu en það sem fyrir lægi. Ég dreg það í efa að ég hafi fengið réttar upplýsingar. Ég skil núna, herra forseti, hvers konar vinnubrögð hæstv. fjmrh. vill iðka gagnvart stjórnarandstöðunni.
Hæstv. ráðherra sagði: Við þurfum öll að leggjast á eitt. Og við vitum hvernig hann ætlar að leggjast á þessa sveif, herra forseti.