Ferill 2. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


124. löggjafarþing 1999.
Þskj. 13  —  2. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um staðfestingu samnings milli Íslands, Noregs og Rússlands um tiltekna þætti í samstarfi á sviði sjávarútvegs ásamt tvíhliða bókunum Íslands og Noregs annars vegar og Íslands og Rússlands hins vegar.

Frá meiri hluta utanríkismálanefndar.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Sverri Hauk Gunnlaugsson ráðu
neytisstjóra, Eið Guðnason skrifstofustjóra og Tómas H. Heiðar þjóðréttarfræðing frá utanríkisráðuneytinu, Jóhann Sigurjónsson, forstjóra Hafrannsóknastofnunarinnar, og Arnór Halldórsson frá sjávarútvegsráðuneytinu.
    Þar sem tími til nefndarstarfa á þessu sumarþingi er takmarkaður hélt nefndin sameiginlegan fund með sjávarútvegsnefnd um málið í stað þess að senda henni það til umsagnar eins og venja er um sambærileg mál. Fengu nefndirnar á sinn fund Benedikt Valsson frá Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, Helga Laxdal frá Vélstjórafélagi Íslands, Sævar Gunnarsson og Hólmgeir Jónsson frá Sjómannasambandi Íslands, Kristján Ragnarsson frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna og Arnór Halldórsson frá sjávarútvegsráðuneytinu.
    Meiri hlutinn telur mikilvægt að náðst hafi samningar við Norðmenn og Rússa um þorskveiðar í Barentshafi. Auk þess að fjalla um efnisatriði rammasamningsins við Norðmenn og Rússa og bókananna við hann fjallaði nefndin sérstaklega um framkvæmd samningsins af Íslands hálfu. Þar sem samningurinn er ekki kominn til framkvæmda telur meiri hlutinn eðlilegt að Alþingi fylgist vel með framkvæmdinni hér á landi en það er í verkahring sjávarútvegsnefndar.
    Lára Margrét Ragnarsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Meiri hlutinn leggur til að tillagan verði samþykkt.

Alþingi, 14. júní 1999.



Jón Kristjánsson,


varaform., frsm.


Einar K. Guðfinnsson.


Jóhann Ársælsson.



Vilhjálmur Egilsson.


Valgerður Sverrisdóttir.


Þórunn Sveinbjarnardóttir.



Kristján Pálsson.