Jón Bjarnason (andsvar):
Herra forseti. Við munum að sjálfsögðu styðja góðan sauðfjársamning ef hann verður fullnægjandi og vit í honum fyrir sauðfjárbúskap í landinu. Betur væri að ráðherra ráðfærði sig oftar við okkur í þeim efnum. Það sem ég lagði áherslu á hér voru hins vegar bráðaaðgerðir fyrir sauðfjárbændur. Samningurinn sem hæstv. ráðherrann var að tala um kemur ekki til framkvæmda fyrr en u.þ.b. að ári liðnu, á því bili sem við deilum um hvort hefjist fyrsta ár nýrrar aldar eða hin nýja öld. Við þyrftum því nú þegar --- og reyndar á nýliðnum haustdögum í síðasta lagi --- að fara í bráðaaðgerðir varðandi stöðu sauðfjárbænda. Það var það sem ég átti við. En ég ítreka, herra forseti, að ég fagna því að hæstv. landbrh. muni leita til okkar þingmanna vinstri grænna svo eitthvað gott muni standa í þessum sauðfjársamningum.