Fyrirspyrjandi (Ásta R. Jóhannesdóttir):
Herra forseti. Þetta er fjórða og síðasta fyrirspurnin sem varðar þjónustu við geðsjúk börn sem ég legg fyrir hæstv. ráðherra að þessu sinni. Nú hefur komið fram að langtímameðferð fyrir geðsjúk börn er til staðar og þess vegna spyr ég hæstv. ráðherra hvort fyrirhugað sé að hefja langtímameðferð eða framhaldsmeðferð að lokinni meðferð barna og unglinga sem hafa dvalið á barna- og unglingageðdeild Landspítalans. Foreldrar þessara sjúku barna kvörtuðu yfir því við okkur þingmenn sem komu á fund þeirra í fyrra, og hv. þm. Ögmundur Jónasson vísaði til í máli sínu fyrr á fundinum, að það væri mikið vandamál að barna- og unglingageðdeildin sinnir aðeins skammtímameðferð. Það hefur viljað brenna við að börnin fara inn í e.t.v. sex vikur, þá eru þau útskrifuð og send heim og ekkert tekur við. Foreldrarnir eða jafnvel einstætt foreldri, móðir eða faðir, eru heima með vandann og barnið er jafnmikið veikt og það var þegar það fór inn á geðdeildina sex vikum áður. Síðan gengur þetta alltaf sama hringinn, barnið er heima vissan tíma og síðan kemur það í bráðainnlögn og er lagt aftur inn á barnageðdeildina í einhverjar vikur og síðan aftur útskrifað heim.
Þetta er ástand sem er alls ekki hægt að búa við. Þess vegna spyr ég hæstv. ráðherra hvort áform séu uppi um frekari langtímameðferð. Það kom fram í umræðunni áðan að það eru nokkur pláss, sex pláss á Kleifarveginum, en það er alls ekki nóg. Það eru tíu til fimmtán börn í samfélagi okkar sem þurfa þessa þjónustu, það eru hvíldarinnlagnirnar og það er þessi langtímameðferð. Það er ekki hægt að leggja það á þær fjölskyldur sem eiga þessi börn að þær taki alltaf við vandanum heim.
Ég spyr því hæstv. ráðherra: Hvaða áform eru uppi til að bjóða upp á langtímameðferð eða framhaldsmeðferð eftir barna- og unglingageðdeildina fyrir fleiri en þau sex börn sem komast inn á Kleifarveginn?