Öryggismál á hálendi Íslands

Mánudaginn 07. febrúar 2000, kl. 15:28:04 (4049)

2000-02-07 15:28:04# 125. lþ. 57.2 fundur 282#B öryggismál á hálendi Íslands# (óundirbúin fsp.), dómsmrh.
[prenta uppsett í dálka] 57. fundur, 125. lþ.

[15:28]

Dómsmálaráðherra (Sólveig Pétursdóttir):

Herra forseti. Ég ítreka að ég hef ekki fengið neinar ábendingar um þetta mál til dómsmrn. Hins vegar er alveg ljóst að það getur verið mjög viðamikið og ábyrgðarmikið starf sem landverðir gegna en ég verð að segja það að af reynslu minni og því sem ég hef séð til starfa þeirra að þeir hafa staðið sig ákaflega vel.