Jóhanna Sigurðardóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég tel alveg skýrt eftir það sem fram hefur komið hjá hæstv. ráðherra að það þarf að skoða þessi mál. Hæstv. ráðherra er alls ekki viss um hvort verið sé að framfylgja í einu og öllu því sem fram kemur í þessari ályktun og efh.- og viðskn. studdi og fram kemur líka í því svari sem hæstv. ráðherra gaf þinginu. Ráðherrann segir að stimpilgjöldin séu skattur en ekki gjaldtaka. Ég hygg að um það megi deila. Sjálfstfl. og forsvarsmenn hans mega ekki haga sér þannig að kalla tiltekna tegund gjalda skatt þegar þeim hentar en þjónustugjöld þegar svo ber við.
Ég vil spyrja hæstv. ráðherra: Hvort er gjald fyrir ökuskírteini og gjald fyrir vegabréf, skattur eða þjónustugjald? Ég held að það ætti tvímælalaust að fella undir það sem hæstv. ráðherra nefndi í svari til hv. þm. Jóhanns Ársælssonar að þar megi ekki fara umfram kostnaðinn við útgáfu á vegabréfum og ökuskírteinum. Þar hefur greinilega verið farið langt umfram það, 80 millj. umfram varðandi vegabréfin á síðasta ári og 50 millj. að því er varðar ökuskírteini. Mér finnst því mjög brýnt að ráðherrann úttali sig um það hvort hann telji að þarna sé um kostnað að ræða eða þjónustugjald, gjald fyrir veitta þjónustu eða hvort hann telur að þetta séu skattar.
Það stendur eftir eftir þessa umræðu að efh.- og viðskn. á mikið verk fyrir höndum að fara ofan í þessi mál, ekki síst með tilliti til þeirrar ályktunar sem efh.- og viðskn. mælti sjálf með að yrði samþykkt á Alþingi um aukatekjur ríkissjóðs.