Vilhjálmur Egilsson:
Virðulegi forseti. Ég beið eftir því að hv. síðasti ræðumaður legði til að stofnað yrði eitt ríkisverðbréfafyrirtæki sem yrði fyrirmynd allra annarra í siðlegum viðskiptum. En það sem málið snýst um er að þessi markaður er ungur og mörg af þeim viðfangsefnum sem koma upp á markaðnum eru mjög lýsandi fyrir það þróunarstig sem hann er á. Það eru mörg viðfangsefni sem við er að glíma og markaðurinn sjálfur eða þeir aðilar sem á honum starfa hafa að því er mér sýnist sýnt fulla ábyrgð í því að taka þátt í að bæta og auka fagmennsku þar.
Við skulum alveg gera okkur grein fyrir því að í þeim fyrirtækjum sem þarna starfa er verið að höndla með mikla fjármuni og það skiptir máli að til þessara fyrirtækja sé litið með trausti og þau gæti ýtrustu hagsmuna ótengdra viðskiptavina. Þetta er einfaldlega mál sem þarf að fara yfir frá öllum hliðum og ná bestu lendingu í.
En það er ýmislegt sem búið er að koma hér inn á sem mætti svo sem fjalla um miklu lengur. Ég tek undir það að í lögunum um innherjaviðskipti þarf að taka betur á og sérstaklega tel ég að skýra þurfi betur yfirmannsábyrgð þannig að á viðskiptum starfsmanna sé skýr yfirmannsábyrgð og menn séu ekki hver um sig að versla með verðbréf án þess að yfirmenn eða stjórn samþykki það í hverju tilviki.
Varðandi siðanefnd og umræðu um hana, þá get ég um margt séð það að slík siðanefnd yrði til góðs. Hún yrði þá fyrst og fremst að vera nefnd aðila á markaðnum þar sem menn mundu leitast við að bæta starfshætti og auka þá fagmennsku sem þarf að vera við lýði á þessum markaði.