Viðlagatrygging Íslands

Fimmtudaginn 10. febrúar 2000, kl. 14:47:35 (4232)

2000-02-10 14:47:35# 125. lþ. 61.6 fundur 181. mál: #A Viðlagatrygging Íslands# (styrkir til forvarna) frv., Flm. LB
[prenta uppsett í dálka] 61. fundur, 125. lþ.

[14:47]

Lúðvík Bergvinsson:

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á lögum um Viðlagatryggingu Íslands, nr. 55/1992. Fyrsti flm. þessa máls er Björgvin G. Sigurðsson sem sat hér um skeið sem varaþingmaður en situr ekki núna og þess vegna mæli ég fyrir frv. Auk okkar tveggja er hv. þm. Einar Már Sigurðarson flm. að frv.

Í 1. gr. frv. er lagt til að hlutverk Viðlagatryggingar verði breytt þannig að hún vátryggi gegn tjóni af völdum náttúruhamfara sem nefndar eru í 4. gr. laga þessara og veiti styrki til rannsókna og framkvæmda sem ætlað er og sýnt er fram á að varni og dragi úr tjóni af völdum náttúruhamfara.

2. gr. frv. hljóðar svo, en það er breyting á 21. gr.:

,,Stjórn stofnunarinnar skal veita fé til rannsókna og til að styrkja framkvæmdir sem ætlað er að varna eða draga úr tjóni af völdum náttúruhamfara sé sannanlega sýnt fram á að um virkar forvarnir sé að ræða. Enn fremur er stjórninni heimilt að veita styrki til fræðslu- og þjálfunarmála þeirra landssamtaka sem hafa samstarfssamning við Almannavarnir ríkisins um skipun hjálparliðs. Árleg heildarfjárveiting í þessu skyni má þó ekki vera meiri en 8% af bókfærðum iðgjöldum síðasta árs.``

Í 3. gr. er mælt fyrir um að lög þessi öðlist þegar gildi þegar Alþingi hefur samþykkt þau.

Virðulegi forseti. Frv. þetta er lagt fram í því skyni að koma í veg fyrir þær miklu og ófyrirséðu hörmungar sem náttúruhamfarir geta valdið með tilheyrandi eignatjóni og mannskaða. Með náttúruhamförum er m.a. átt við jarðskjálfta, skriðuföll, vatnsflóð og snjóflóð. Mikilvægt er að öflugt forvarnastarf verði unnið á þessu sviði svo að koma megi í veg fyrir eða minnka hættuna á eignatjóni og mannskaða. Sérstaklega er brýnt að afstýra tjóni sem orðið getur á heilbrigðisstofnunum, skólum og elliheimilum. Í mörgum tilfellum er einnig mikilvægt að veita einstaklingum styrki til slíkra forvarna sé sannanlega sýnt fram á að yfir lífi þeirra og eignum vofi vá náttúruhamfara.

Það hefur margoft komið í ljós að náttúruhamfarir hafa valdið meira tjóni en orðið hefði ef forvarnastarfi hefði verið betur sinnt og meira fé runnið til þess. Viðlagatrygging Íslands ætti að hafa skýrara hlutverki að gegna í þessu sambandi og því er mikilvægt að umboð hennar og hlutverk til þess að veita fé til forvarna sé skýrara en það er nú. Því er lagt til í frv. þessu að hún skuli veita fé til forvarna gegn náttúruhamförum sé sannanlega sýnt fram á að þær séu virkar.

Í tíð Íslandsbyggðar hafa náttúruhamfarir margoft valdið gríðarlegu tjóni. Það eina sem komið getur í veg fyrir og minnkað hættuna sem af þeim stafar er fé til forvarna. Sem dæmi má nefna að hægt er að veita stofnunum og einstaklingum á jarðskjálftasvæðum fé til að styrkja gler í gluggum og til að koma upp neyðarútgönguleiðum úr byggingum og eins þyrfti að tryggja að þær byggðir landsins sem eru á snjóflóðasvæðum séu varðar sem skyldi.

Í frv. er lagt til að hlutverk Viðlagatryggingar Íslands sé aukið í þá veru að hún virki sem forvörn gegn yfirvofandi náttúruhamförum auk þess að vátryggja gegn tjóni af völdum náttúruhamfara sem nefndar eru í 4. gr. laganna. Því er einnig mikilvægt að árleg heildarfjárveiting til Viðlagatryggingar Íslands megi vera hærri og lagt til að hún sé hækkuð í 8% af bókfærðum iðgjöldum síðasta árs svo að stofnunin geti sinnt þessu aukna hlutverki.

Virðulegi forseti. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að málið fari til efh.- og viðskn.