Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde) (andsvar):
Herra forseti. Ég veit ekki alveg hvað þingmaðurinn er að fara með þessu, ég átta mig ekki alveg á þeim fullyrðingum sem fram koma í máli hans. Ég hlýt að vekja athygli á því að í frv. er eingöngu talað um sundurliðun einstakra þátta að því er varðar heildarlaunagreiðslur, þar með talið skipting í fasta yfirvinnu, aðra yfirvinnu og þess háttar. Það er ekki verið að tala um að kjör einstakra manna séu birt á slíku yfirliti.