Drífa Hjartardóttir:
Herra forseti. Ég vil þakka 1. flm. þessa frv. fyrir framsögu hans. Hér er til umræðu frv. til laga um breyting á tollalögum, nr. 55/1987, með síðari breytingum.
Lagt er til að við bætist tveir nýir töluliðir, þ.e. að Höfn í Hornafirði og Þorlákshöfn verði tollhafnir. Þetta er mikið réttlætis- og byggðamál. Þetta mál kemur nú fyrir þingið í þriðja skipti en undanfarin ár hafa farið fram miklar viðræður sveitarstjórna Ölfushrepps og bæjarstjórnar Hafnar í Hornafirði um möguleika þessara byggðarlaga á verða viðurkenndar tollhafnir. Það hefur ekki gerst enn og því er þetta frv. lagt fram.
Á Suðurlandi er aðeins ein höfn sem nýtur réttinda aðaltollhafnar, en það er Vestmannaeyjahöfn. Mikil samstaða hefur verið á meðal sveitarstjórnarmanna í Suðurlandskjördæmi um að mikilvægi Þorlákshafnar aukist sem almennrar vöruhafnar. Ályktað hefur verið um þessi mál ár eftir ár á aðalfundum SASS og eins og áðan sagði er þar mikil samstaða í þessu máli.
Miklir flutningar fara um Þorlákshöfn eins og fram hefur komið og þar hafa verið stofnuð fyrirtæki eins og t.d. Kuldaboli, sem vígt var nú í haust, afar myndarlegt fyrirtæki sem er frysti- og kæligeymsla. Það er mikilvægt fyrir íbúa Þorlákshafnar og raunar fyrir allt Suðurland að mikilvægi Þorlákshafnar sem inn- og útflutningshafnar aukist og má telja þetta mál eina af forsendum þess að það takist.
Eins er með Höfn í Hornafirði. Það bæjarfélag hefur vaxið, nánast tvöfaldast síðustu tvo áratugi og umsvif atvinnufyrirtækja þar hafa eflst að sama skapi. Við teljum að ekki eigi á nokkurn hátt að raska þeirri tollafgreiðslu sem er á Selfossi. Þar sem þetta mál er lagt fram í þriðja sinn og allt er þá er þrennt er, er það ósk okkar að þetta mál nái fram að ganga.